Fjárhagsáætlun afgreidd í bæjarstjórn
Samstæða Ísafjarðarbæjar, A og B hluti bæjarsjóðs, skilar 36 milljóna króna afgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem hefur verið samþykkt í bæjarstjórn. Er það sambærileg afkoma og var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun þessa árs en umtalsvert lakara en 225 milljóna króna afgangur sem varð af rekstrinum árið 2016. Sé horft á rekstur A hluta, sem er sá hluti rekstursins sem er rekinn fyrir skattfé, skilar hann 46 milljóna króna tapi á næsta ári en jákvæð niðurstaða B hluta bæjarsjóðs, sem eru stofnanir eins og Ísafjarðarhöfn sem eru reknar fyrir eigin tekjur, hífir afkomuna upp.
Gert er ráð fyrir að útsvarsstofn hækki um 8% milli áranna 2017 og 2018. Útsvarsgreiðslur fyrir árið 2018 eru áætlaðar 2.064 milljónir kr. samanborið við 1.941 milljónir kr. í áætlun 2017.
Í áætlun 2017 var gert ráð fyrir að íbúum Ísafjarðarbæjar myndi fjölga um 1% og yrðu 3.650 í árslok 2017. Í byrjun desember hafði íbúum fjölgað um 2,9% frá árslokum 2016. Í fjárhagsáætlun 2018 er enn gert ráð fyrir að íbúum muni fjölga um 1% á árinu 2018 frá deginum í dag og verði 3.751 í lok árs.
2017 árgangurinn í háum klassa
Það er vertíðarstemmning í fiskbúð Sjávarfangs á Ísafirði nú fyrir jólin og að vanda er hin rammvestfirska skata í burðarhlutverki í búðinni. Kári Þór Jóhannsson fiskali segir að skötuárgangurinn í ár sé fyrirtak. „Ég fékk mjög fallega skötu í kæsingu fyrir þessi jólin. Hún kemur eiginlega öll af línubátunum í Bolungarvík,“ segir Kári. Hann ætlar að bregða út af vananum og hafa opið á morgun laugardag. „Ég er nú ekki vanur að hafa opið á laugardögum en maður verður að hafa eitthvað opið á Þorláksmessu fyrir fólk sem er að renna í bæinn. Ég er bæði með skötu sem er tilbúin í pottinn og skötustöppu sem það vilja, en eldra fólkið er mjög hrifið af því að geta keypt stöppuna tilbúna,“ segir Kári.
Kæsing er gömul aðferð við verkun matvæla þar sem maturinn er látinn gerjast og byrja að rotna. Á meðal þeirra matvæla sem algengast er að kæsa hér á landi er hákarl og skata en einnig þekkist að kæsa egg og eitthvað af fuglakjöti er líka kæst.
Kæstur matur ber með sér sterka lykt sem stafar af niðurbroti efna í matnum. Mörgum finnst lyktin ógeðfelld. Skata, rétt eins og hákarl, er brjóskfiskur. Í holdi brjóskfiska er hár styrkur af þvagefni. Við kæsingu umbreytist þvagefnið í ammoníak sem öðru fremur valda bæði stækjulyktinni og bragðinu.
Fjárlagafrumvarpið „svik við kjósendur“

Samfylkingin gagnrýnir harðlega fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. í fréttatilkynningu þingflokks Samfylkingarinnar segir að fjárlagafrumvarpið beri vott um svik við kjósendur og algjört metnaðarleysi í velferðarmálum. Einnig segir að langflestir hagsmunaaðilar sem komu á fund fjárlaganefndarinnar hafi lýst yfir miklum vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið og að hvorku sé ráðist í nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum samfélagsins né ráðist í nauðsynlega tekjuöflun. „Þegar þetta fjárlagafrumvarp er borið saman við fjárlagafrumvarp fyrri ríkisstjórnar sem Vinstri græn kölluðu „hægri sveltistefnu“ kemur í ljós að einungis er gerð 2% breyting á milli frumvarpa. Í meðförum fjárlaganefndar tók frumvarpið aðeins 0,2% breytingum og því er fjárlagafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur eingöngu 2,2% frábrugðið fjárlagafrumvarpi síðustu ríkisstjórnar,“ segir ennfremur.
Helsta gagnrýni og breytingartillögur Samfylkingarinnar eru eftirfarandi:
- Því miður er ekkert tekið á misskiptingunni í samfélaginu í gegnum skattkerfið. Núna eiga 5% af ríkustu landsmönnum jafnmikið af hreinum eignum og hin 95% landsmanna.
- Engar viðbótarfjárveitingar eru settar í barnabætur, vaxtabætur, húsnæðisstyrk, fæðingarorlof og húsnæðismál. Samfylkingin leggur til að 5 milljarðar verði settir í barna- og vaxtabótakerfið og 2 milljarðar verði settir í stofnframlög til almennrar íbúða
- Sveltistefna gagnvart heilbrigðiskerfinu heldur áfram, en nú í boði Vinstri grænna. Allir forsvarsmenn heilbrigðisstofnana sem komu á fund fjárlaganefndar lýstu yfir mikilli óánægju með fjárlagafrumvarpið. Enn vantar Landspítalann tæplega 3 milljarða einungis til að halda í horfinu og að óbreyttu mun þjónusta spítalans versna. Heilbrigðisstofnanir úti á landi fá minna en helming af því sem þær óskuðu eftir svo hægt væri að tryggja óbreytta starfsemi. Þá fá hjúkrunarheimili beinlínis lækkun á milli ára. Samfylkingin leggur því til að 3 milljarðar renni til Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri, 500 milljónir til heilbrigðisstofnanna og 400 milljónir til heilsugæslunnar.
- Bæði landsamtök eldri borgara og öryrkja lýsa miklum vonbrigðum með frumvarpið. Samfylkingin leggur því til að í málefni aldraðra verði settur 1,5 milljarður aukalega og 3 milljarðar fari til öryrkja.
- Framhaldsskólastigið býr enn við talsverða fjárhagserfiðleika og leggur Samfylkingin til að það fái tvöfalt meira en það sem ríkisstjórnin leggur til eða 400 milljónir króna.
- Samfylkingin leggur til 50% hækkun á því nýja fjármagni sem ríkisstjórnin og fjárlaganefnd leggja til samgöngumála eða 1 milljarð kr.
- Samfylkingin leggur til að einn milljarður fari í stórsókn gegn kynbundnu ofbeldi og fjölgun lögreglumanna en einungis einn fimmti þeirra fjárhæðar er að finna í fjárlagafrumvarpinu.
- Stjórnarflokkunum verður gefið tækifæri til að afnema bókaskattinn og liggur tillaga þess efnis fyrir þinginu í boði Samfylkingarinnar.
Fjárlagafrumvarpið lítið tilefni til bjartsýni
Lestur fjárlagafrumvarps nýrrar ríkisstjórnar gefur lítið tilefni til bjartsýni og að óbreyttu mun bilið á milli ríkra og fátækra í samfélaginu enn fara vaxandi. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ. Aukin framlög til heilbrigðiskerfisins eru til bóta en í ályktuninni segir að þau duga með engu móti til að mæta þeirri miklu fjárþörf sem til staðar er. Greiðsluþátttaka sjúklinga er allt of mikil að mati ASÍ og „enn er gert ráð fyrir því að framlög til einkareksturs í heilbrigðiskerfinu aukist umtalsvert meira en til opinberu þjónustunnar.“
ASÍ sakar ríkisstjórnin um viljaleysi til að auka jöfnuð og endurreisa réttindi launafólks. „Þetta birtist m.a. í veikingu á barna- og vaxtabótakerfinu og virðingaleysi fyrir afkomutryggingu launafólks í atvinnuleysistryggingum, ábyrgðasjóði launa og fæðingarorlofi. Gríðarlegur húsnæðisvandi þeirra tekjulægstu er ekki tekinn alvarlega og sá hluti menntakerfisins sem þjónar launafólki með litla formlega menntun er vanræktur. Þá sjást engin merki um að efna eigi loforð um efling verk- og starfsnáms,“ segir í ályktuninni.
Miðstjórn ASÍ kallar eftir þeim áherslum í fjárlögum sem boðaðar eru í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar um samráð og samstarf við aðila vinnumarkaðarins um efnahagslegan og samfélagslegan stöðugleika. ASÍ segir ljóst að þetta fjárlagafrumvarp dugar ekki til þess að leggja grunn að slíku samstarfi. Miðstjórn lýsir jafnframt vonbrigðum sínum með að ríkisstjórnin ætli ekki að hafa neitt frumkvæði að bættum lífskjörum og auknu afkomuöryggi félagsmanna ASÍ.
smari@bb.is
Fá fjórðung tekjutapsins bættan
Sauðfjárbændur geta vænst þess að fá um fjórðung verðfalls afurðanna í haust bættan með sérstökum fjárframlögum ríkisins. Almennur stuðningur getur numið um 300 þúsund krónum á „meðalbú“. Þeir sem búa á afskekktari svæðum fá viðbót sem numið getur a.m.k. 500 þúsund kr. til viðbótar. 400 kinda bú fær því 300 til 800 þúsund kr. en áætla má að tekjutapið hafi numið yfir 1,4 milljónum. Áform um stuðning við sauðfjárbændur til að bregðast við markaðserfiðleikum koma fram í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2017 sem dreift hefur verið á Alþingi. Þar er gert ráð fyrir 665 milljóna króna framlagi í þetta verkefni.
Stuðningnum verður beint í mismunandi farvegi. 300 milljónir fara í almennan stuðning og deilast út mið- að við fjölda kinda á viðkomandi býli. 200 milljónir fara til að auka svæð- isbundinn stuðning, á býli sem liggja fjarri þéttbýli og skilgreind eru í gildandi búvörusamningi. Því til viðbótar á að undirbyggja verkefni á sviði kolefnisjöfnunar, nýsköpunar og markaðssetningar. Þá á að gera úttekt á afurðastöðvakerfinu og styðja við aukna hagræðingu.
Hafa tilkynnt um úrsögn úr Byggðasamlaginu
Ísafjarðarbær hefur tilkynnt formanni Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs (BsVest) fólks um úrsögn bæjarins úr byggðasamlaginu. Þetta kemur fram í bréfi Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, til Andreu K. Jónsdóttur, sveitarstjóra Strandabyggðar og formanns BsVest. Í bréfinu er vísað í samþykkt bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar þar sem ákveðið var að bærinn segði sig úr samstarfinu en bæjarfulltrúar Í-listans og Framsóknarflokks stóðu að ákvörðuninni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðust gegn tillögunni í bæjarstjórn.
Í bréfi Gísla Halldórs kemur fram að Ísafjarðarbær hafi fullan vilja til áframhaldandi samstarfs með öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum um þennan málaflokk eftir að úrsögn Ísafjarðarbæjar tekur gildi. Fram til þess tíma að úrsögn tekur gildi óskar Ísafjarðarbær eftir góðu samstarfi við sveitarfélög á Vestfjörðum um málefni fatlaðs fólks, jafnt á vettvangi BsVest sem annarsstaðar.
Sveitarfélögin með útsvarið í botni
Þrátt fyrir góðæri hjá sveitarfélögunum sem skilar sér í verulegum tekjuafgangi og skuldalækkun nýta þau möguleika sína til skattlagningar næstum því til fulls.
Aðalundantekningin er fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði. Ef litið er til tólf fjölmennustu sveitarfélaga landsins sést að flest leggja þau á hámarksútsvar á næsta ári, eða 14,52%, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag. Öll sveitarfélög á Vestfjörðum innheimta hámarksútsvar á næsta ári en til þessa hefur Súðavíkurhreppur innheimt 14,48% útsvar en það hækkar á næsta ári í 14,52%.
Gul viðvörun á Vestfjörðum
Á morgun, Þorláksmessu og fram á aðfangadag, er í gildi gul viðvörun á Vestfjörðum. Veðurstofan spáir norðaustan stórhríð og slæmu skyggni og skafrenningi, einkum á fjallvegum og veðrið gæti leitt til samgöngutruflana.
Veðurstofan spáir suðvestan 8-13 m/s í dag og slydduéljum og rigningu. Snýst í norðaustanátt í nótt og kólnar.
44 milljóna króna afgangur af rekstrinum
Samstæða Tálknafjarðarhrepps, A og B hluti sveitarsjóðs, skilar 44 milljóna kr. afgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun sem var samþykkt fyrr í vikunni. Heildartekjur samstæðunnar nema 341 milljón kr. og afborganir langtímalána verða 24 milljónir kr. á næsta ári. Eiginfjárhlutfall sveitarfélagsins er 47 prósent og skuldahlutfallið stendur í 68,4 prósentum. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að ráðast í fjárfestingar fyrir 17 milljónir kr. á næsta ári.
smari@bb.is