Miðvikudaginn 20. desember fór fram brautskráning frá Menntaskólanum á Ísafirði. Athöfnin fór fram í Ísafjarðarkirkju og var henni jafnframt streymt af Viðburðastofu Vestfjarða.
Á haustönn voru 448 nemendur skráðir í nám við skólann. Alls voru 184 nemendur í dagskóla og þar af 57 nýnemar. Aðrir nemendur stunduðu dreifnám eða fjarnám. Yngsti nemandinn er 14 ára og sá elsti 65 ára. Margir nemendur eru með annan tungumála- og menningarbakgrunn en íslenskan og í dagskóla er hlutfall þeirra 25%. Um helmingur dagskólanemenda skólans stundar nám á starfs- eða verknámsbrautum og er það svipað hlutfall og undanfarnar annir.
Alls brautskráðust 32 nemendur frá skólanum að þessu sinni. Af þeim voru 5 dagskólanemendur, 16 dreifnámsnemendur og 11 nemendur í fjarnámi með MÍ sem heimaskóla.
Nemendurnir 32 útskrifuðust af 13 námsbrautum:
- 1 nemandi úr grunnnámi rafiðngreina
- 6 nemendur úr húsasmíði
- 3 nemendur úr iðnmeistaranámi
- 1 nemandi af sjúkraliðabraut
- 1 nemandi af sjúkraliðabrú
- 1 nemandi af skipstjórnarbraut A
- 3 nemendur af skipstjórnarbraut B
- 1 nemandi úr stálsmíðanámi
- 1 nemandi með viðbótarnám við smáskipanám
- 18 nemendur með stúdentspróf (4 af félagsvísindabraut, 1 af náttúruvísindabraut, 8 af opinni stúdentsbraut og 4 með stúdentspróf af fagbraut)
Fimm nemendur fengu verðlaun við brautskráninguna:
Baldur Freyr Gylfason hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í grunnnámi rafiðna.
Fríða Ástdís Steingrímsdóttur hlaut verðlaun fyrir seiglu í námi.
Jón Karl Ngosanthiah Karlsson hlaut verðlaun fyrir góða þátttöku í félagsstörfum.
Lára Ósk Pétursdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur.
Roberta Soparaite hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í húsasmíðanámi.
Skólameistari er Heiðrún Tryggvadóttir.