Mánudagur 2. september 2024
Síða 18

Messað í Eyrarkirkju í Seyðisfirði

Frá messu í Eyrarkirkju á síðasta ári. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Messað verður í Eyrarkirkju í Seyðisfirði á morgun, sunnudag og hefst messan kl 14.

Eyri hefur löngum veriði kirkjustaður íbúa Seyðisfjarðar og hún var helguð Pétri postula í katólskri tíð.

Nokkrar hinar síðari aldir var hún hluti af Ögurþingum en var sett undir Ísafjörð árið 1970.
Hún var friðuð 1. janúar 1990.

Kirkjan, sem nú stendur, var byggð 1866. Hún er járnklætt timburhús. Guðmundur Bárðarson bóndi á Eyri lét byggja núverandi kirkju.

Eyrarkirkja er bændakirkja og er í einkaeigu.

Ísafjarðarbær: bæjarráðið kemur saman á mánudaginn

20.júlí sl. voru tvö stór skemmtiferðaskip við Sundabakka og eitt lá við akkeri útar. Við Mávagarð lá laxaflutningskip til marks um gróskuna á Vestfjörðum sem tengjast þessum atvinnugreinum. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar kemur úr sumarfríi á mánudaginn, en þá verður næsti fundur þess. Síðasti fundur var fyrir fjórum vikum, þann 15. júlí.

meðal þess sem rætt verður á fundinum er að sögn Gylfa Ólafssonar, formanns bæjarráðs, undirbúningur að fjárhagsáætlunargerð næsta árs og lagt verður fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. júlí 2024, með uppfærðum forsendum fjárhagsáætlana í kjölfar nýrrar þjóðhagsspár Hagstofu Íslands sem kom út um mánaðarmótin júní / júlí.

Þá verður lagt fram minnisblað fjármálastjóra Ísafjarðarbæjar, dags. 2. ágúst 2024, um niðurstöðu annars ársfjórðungs 2024 ásamt stöðu framkvæmda og viðhalds í lok annars ársfjórðungs.

 Hagræðingin                                                           

Um það leiti sem ég var að yfirgefa mínar æskustöðvar Flateyri á áttunda áratug tuttugustu aldar þá bjuggu það tæplega fimmhundruð manns.

Þar var frystihúsið Hjálmur sem var lífæð samfélagsins sem renndi svo stoðum undir annan atvinnurekstur sem og blómleg nægjusöm viðskipti. 

 þar var Sparisjóður Önfirðing, Kaupfélag Önfirðinga og Póstur og sími – þar var Allabúð, Greipsbúð, Bræðurnir Eyjólfsson og bakarí – þar var líka versluni Dreifir sem seldi smærri heimilistæki og ýmislegt annað nytsamlegt og lítil hannyrðaverslun í horninu hjá Ninnu Hinriks, þar var líka sjoppan hans Einars Hafberg og Essosjoppa – þar var Hefill smíðaverkstæði og þar var málari, rafvirki, múrari og Benni sem vissi allt um vélar, þar var líka saumakona og hárgreiðslukona, þar var ljósmóðir og gjaldfrjáls læknir sem jafnvel leysti úr vandræðum manna á förnum vegi ókeypis, þar var líka hljómsveit sem reglulega sló upp dansleikjum í félagsheimilinu sem í þá daga hýsti menningarviðburði af ýmsum toga þorpsbúum til afþreyingar og ánægju og þar var líka Barna og unglingaskóli Flateyrar sem á nú í vök að verjast.

Lífið gekk sinn vanagang í þessu litla þorpi fyrir tíma hagræðinga og flestir vissir með sína lífsafkomu.

En svo var það einn daginn að farið var að tala um ofveiði. Trillurnar og dagróðrar bátarnir voru að ganga af þeim gula dauðum að sagt var. Til að stemma stigu við þessum ótíðindum gripu stjórnvöld til þeirra ráða meðal annars að úthluta aflaheimildum og skipstjórakvóta á togarana sem þá voru ekki svo stórir í samanburði við togara nútímans og í framhaldi ekki svo löngu síðar var framsal á kvóta heimilað og þá hófst hagræðingin í sjávarútvegi fyrir alvöru með tilflutningi á aflaheimildum og frystitogaravæðingu og frystihúsin fóru í úreldingu. – þar með var búið að klippa á lífæðar litlu sjávarþorpana hringin í kringum landið og lífsafkomu þúsundir heimila – síðan þá hafa þessi litlu þorp sem áður sköffuðu svo vel í þjóðarbúið barist í bökkum bótalaust.

Fljótlega fór að kvarnast upp úr þessum samfélögum, fólk með brostnar vonir fluttist óbætt á brott frá verðlausum eigum og verslanir og þjónusta heyrðu brátt sögunni til – svo allt sem fólkinu sem enn þraukaði vanhagaði um þurfti að sækja um lengri veg með tilheyrandi kostnaði sem stöðugt eykst með hverri framkvæmd sem fyrirhuguð er í vegamálum landsins í formi til dæmis vegtolla og kílómetragjalds – sem auðvitað er svo ávísun á hækkandi verð á öllum aðföngum fyrir landsbyggðina.

Fyrir tíma hagræðingar í sjávarútvegi var verið að malbika hringveginn og byggðar voru brýr stórar og smáar – þetta var þá metnaðarmál hjá þjóðinni en ekki íþýngjandi verkefni eins og nauðsynlegt viðhald á vegum landsins virðist vera í dag – helst ekkert hægt að gera nema aukaálögur komi til.

Það virðist sem hagræðingin í sjávarútvegi hafi ekki skilað sér eins ríkulega í samneysluna eins og vonir hafa eflaust staðið til – né heldur hefur þeim sem urðu fyrir miklu búsifjum vegna hennar verið bættur skaðinn.

Þessi hagræðing hefur í engu skilað sér til landsmanna – hún gerði fáa ríka og marga snauða – upp úr henni spratt auðmannastétt í landinu – sem á orðið allt sem flat hefur verið á fróni – og svo er frjálsri samkeppni flaggað.

Sumir líta svo á að auðmannastéttin hafi ekki bara bjargað auðlindinni okkar heldur einnig þjóðinni frá fornaldarhokri og benda á máli sínu til stuðnings á breytta tíma – en það er aldrei svo að tímarnir breytist í eitt skipti fyrir öll – því enn og aftur eru breyttir tímar sem gera ríkjandi sjávarútvegsstefnu þjóðarinnar úrelta – nútíðin kalla á vistvænar veiðar – sem sé afturhvarf til fortíðar – að róið sé til fiskjar þaðan sem styðst er á miðin og að aflinn sé fullunninn sem næst löndunarstað -svo darga megi sem mest úr óþarfa þunafluttingum. 

En hversu fús eru stjórnvöld nú til breytinga í þágu náttúrunnar ?

Það hefur ekki bara verið hagrætt í sjávarútvegi á liðnum áratugum í íslensku þjóðfélagi. Það er alltaf endalaust verið að hagræða og ekki ósennilegt að ónot fari um einhverja þegar á hagræðingu er minnst því hún hefur oftast í för með sér niðurskurð, uppsagnir og biðlista. það læðist því að sú hugsun að allt hjal um hagræðingu sé bara fyrirsláttur þegar fela þarf mistök, vandræðagang, undanskot eða hreinlega uppgjöf.

Hagræðing hefur til að mynda staðið yfir í heilbrigðiskerfinu í áratugi en árangurinn vissulega látið á sér standa eins og öllum má vera ljóst því heilbrigðiskerfið hefur aldrei verið eins bágt og nú – það er því sennilega auðsóttara að fá blessun hjá páfanum í Róm heldur en tíma hjá heimilislækni á Íslandi.

Það hefur varla farið framhjá neinum að suma dreymir um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu svo það má velta fyrir sér hvort verktaka sérfræðilækna inn á stofnunum sé liður í að láta þann draum rætast eða hvort hún hafi einungis verið hugsuð sem hagræðing ?

Við greiðum komugjald þegar við förum til sérfræðings á okkar heilsugæslu eða til sjálfstætt starfandi sérfræðings sem heimilislæknir hefur vísað á – sérfræðingarnir senda síðan reikning á Sjúkratryggingar Íslands til að fá greitt fyrir sína vinnu og eins og kom fram í Kveik fyrir nokkrum árum þá voru þeir að fá 700.000 kr á dag að meðaltali.

Hjúkrunarheimili á Íslandi er ríkisstyrktur einkarekstur og það er sagt að hver vistmaður kosti ríkið 2 milljónir á mánuði – það er svipað og mánaðar sigling með skemmtiferðaskipi kostar – í lúxussvítu með einkaþjóni og gufubaði.

Svo eðlilegt að spurt sé hvort farið sé faglega yfir reikninga frá verktökum áður en greitt er fyrir þjónustuna – en bent hefur verið á af ákveðnum þingmönnum að eitthvað vanti upp á rýnið í ríkisresktrinum í sumum tilfellum.

Hér eru bara tvö dæmi tekin úr heilbrigðiskerfinu sem gætu flokkast undir íslenska hagræðingu – en um skeið hafa verktakar einnig séð um þrif og þvotta sem og mat fyrir heilbrigðisstofnanir landsins – svo ekkert nema eðlilegt að þetta fyrirkomulag sé rýnt reglulega til að kanna hagkvæmnina sem í því felst – því ríkinu ber skylda til að velja hagkvæmasta kostinn í hverju og einu – hverju sinni.

Hagræðing hefur einnig átt sér stað í skólakerfinu – fyrsta skrefið í hagræðingarátt hefur ef til vill verið flutningur skóla frá ríki til bæjar og sveitarfélaga – sem á sér stað á sama tíma og bæjar og sveitarfélög eru að missa stóran hluta sinna tekna vegna hagræðingar í sjávarútvegi. Það má því furðu sæta að slík fásinna skuli hafa verið samþykkt af bæjar og sveitarstjórnum. Það er ekki að sjá að þessi flumbrugangur né önnur hagræðing sem hefur átt sér stað í skólakerfinu á liðnum áratugum hafi skilað sér í betri árangri nemenda – sem hlýtur þó alltaf að eiga að vera markmiðið – en eins og alþjóð er kunnugt  þá er ólæsi alvarlegt vandamál meðal barna á Íslandi – sem eitt sinn var talin mikil bókaþjóð.

Skólakerfið á að sjálfsögðu að vera alfarið á höndum ríkisins svo tryggja megi að öllum börnum á Íslandi sé gert jafn hátt undir höfði.

Það er mín skoðun að próf séu nauðsynleg svo hægt sé að fylgjast með hvar börnin standa og að raða þurfi niður í bekki eftir getu – þannig er best tryggt að hvert og eitt fái kennslu við hæfi.

Stjórnvöld á hverjum tíma halda því gjarnan fram að hvergi sé betra að búa en á Íslandi.

Sumir hafa það vissulega mjög gott á meðan aðrir hafa það helvíti skítt og því miður virðast allar hagræðingar lúta að því að gera þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari.

Ísland er ríkt land af auðlindum því ættu allir hér að geta lifað mannsæmandi lífi ef slegið yrði aðeins af forréttindadekrinu.

Við erum lítil þjóð því er einkavinavæðingin og frændhyglin stór vandamál hér á landi.

Þegar við göngum til kosninga þá vitum við í raun ekki alltaf hvað við erum að kjósa yfir okkur því rótgrónir flokkar sumir hafa í gegnum tíðina verið að taka í „fóstur“ heilu ættirnar sem síðan í skjóli flokkshollustu hafa tekið sér völd í sínu nærumhverfi – þá oftast með persónulega hagsmuni að leiðarljósi sem sjaldnast eiga samleið með almannahagsmunum.

Við þurfum að hrista af okkur þessa fornaldarhefð því hún er ekki heilbrigð – hún er ávísun á stöðnun, úrkynjun og landflótta – þar sem tækifæri og völd eru frátekin í frændgarði langt fram í tímann og þá hvorki spurt um getu né hæfileika.

Völd eru vandmeðfarin og þeim fylgir ábyrgð sem ekki er til að dreifa þegar um sjálftekin völd er að ræða – sem stjórnast oftast af sérhagsmunagæslu.

Í siðferðilegum efnum er það fordæmið sem skiptir máli, en ekki forræðið.

                                                                                                    Páll Skúlason

Lifið heil !

Vilhelmína H. Guðmundsdóttir

Kaldalón: festi bílinn og gekk í 6 tíma

Mórilla. Varnargarðurinn í sundur. Myndir: Ólafur J. Engilbertsson.

Ingi Guðnason frá Bæjum var á mánudaginn á leiðinni akandi út á Snæfjallaströnd og þegar hann var kominn að ánni Mórillu í Kaldalóni var áin farin að grafa úr veginum við litlu brúna. Hann fór út bílnum til þess að athuga aðstæður en þá grófst undan bíllnum svo hann festist að aftan og varð ekki haggað. Þetta var um miðnættið að segir Ingi að ekki hafi verið mögulegt að ganga áfram út að Bæjum og var ekki annað að gera en að fara fótgangandi til baka. Þegar hann var kominn að litlu brúnni yfir Kvíslá í Kaldalóni var áin farin að grafa úr veginum við brúna. Þegar hann var kominn að Selá í Skjaldfannardal var hún orðin mjög vatnsmikil og segir Ingi að ljóst hafi verið að tún væru á floti og gekk hann holtin að Laugarholti og var kominn þangað um sex leytið um sexleytið um morguninn.

Illskuveður var og hvasst, en það varð Inga til bjargar að vera með kuldagalla í bílnum.

Hins vegar er ekkert símasamband þarna og því ekki unnt að láta vita af sér eða kalla eftir aðstoð.

Ingi segir að Vegagerðin hafi komið daginn eftir og bjargað bílnum og framkvæmt bráðabirgðaviðgerð og komst Ingi að Bæjum um kvöldið. Ingi Guðnason bar sig vel þegar Bæjarins besta ræddi við hann sem viðurkenndi að vera hálfslæptur eftir gönguna.

Samkvæmt heimildum Bæjarins besta er þetta er í þriðja sinn á innan við ári sem Mórilla flæðir yfir bakka sína. Farvegur Mórillu í Kaldalóni er orðinn fullur af möl svo áin verður að leita annað þegar hún vex. Er talið aðkallandi að ráðast í endurbætur á varnargarðinum og sérstaklega að hreinsa möl úr árfarveginum.

Gunnar Númi Hjartarson yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík sagði í samtali við Bæjarins besta í fyrradag að ætlunin væri að gera frekari lagfæringar í haust þegar minna vatn væri í ánni.

Vegagerð við Kvíslárbrú þar sem Ingi festi bíl sinn.

Uppfært kl 23:13 11.8. og lagfærður texti við myndir.

Miðilsfundur á Ísafirði annað kvöld

Anna Birta.

Lokið er á Suðureyri miðilsfundi Önnu Birtu á Act alone hátíðinni. Vegna mikillar eftirspurnar hefur hún ákveðið að hafa annan miðilsfund á morgun. Verður hann í í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsinu  á Ísafirði á morgun og hefst kl. 19:00.

Miđaverđ er 8500kr. Engir posar á stađnum.

Handantími: 90 mín. 

Aldur: 15 ára og eldri

Viðburðurinn hefst á söng við undirspil píanistans Sigurðar Helga.

Anna Birta Lionaraki miðill rýnir á milli tveggja heima.

Rætt er við lífs og liðna.

Óðinshani

Óðinshani. Ljósmynd Daníel Bergmann

Óðinshani verpur umhverfis norðurhvel jarðar, þar á meðal í N-Evrópu. Óðinshani er alger farfugl og voru vetrarstöðvar óþekktar til skamms tíma en merkingar með dægurritum hafa sýnt að fuglar hér og í Skotlandi dveljast við strendur Perú og Ekvador á vetrum.

Óðinshani er allalgengur varpfugl í auðugu votlendi víða um land og hefur stofninn verið gróflega metinn 50.000 pör (Thorup 2006). Nýlegt mat er miklu lægra eða um 10.000 pör en jafnframt nokkrum annmörkum háð (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Það er samdóma álit manna að óðinshana hafi fækkað verulega hér síðan um 1960 en litlar tölulegar upplýsingar eru fyrir hendi.

Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum:

Útbreiðslukortið endurspeglar líklega hlutfallslega dreifingu óðinshana þar sem votlendi á hásléttum Austurlands: Jökuldalsheiði, Fljótsdalsheiði og Vesturöræfi skora hátt, sem og Arnarvatnsheiði fyrir vestan. Þéttleiki óðinshana mælist illa því þeir eru víða hnappdreifðir og auk þess oft erfitt að túlka varpatferli þeirra. Úttektin gaf aðeins 10.400 pör, nokkuð jafnskipt neðan og ofan 300 m hæðarlínu og gætu um 28% þeirra orpið innan mikilvægra fuglasvæða.

Af vefsíðunni ni.is

 

Ágústa ÍS 65

Svava Rán Valgeirsdóttir, fyrir hönd Hollvinasamtaka Ágústu ÍS 65, og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Undirritaður hefur verið samningur milli Ísafjarðarbæjar og Hollvinasamtaka Ágústu ÍS 65 um að gera upp bátinn Ágústu, sem lengi hefur verið leiktæki á Sumarróló á Suðureyri.

Ágústa ÍS 65 var smíðuð af Hólmbergi Arasyni fyrir 60 árum síðan og er síðasti trébáturinn sem smíðaður var á Suðureyri. Undanfarin ár hefur ástand bátsins verið slæmt og ekki uppfyllt skilyrði reglugerðar um öryggi leikvallatækja og leiksvæða.

Samkvæmt samningnum munu hollvinasamtökin sjá um að skipuleggja og vinna að endurbótum sem snúa að því að gera bátinn hættulausan svo fljótt sem verða má í samráði við heilbrigðiseftirlit, t.d. með því að loka götum í gólfi/þilfari og festa lausar spýtur í lunningu og byrðingi, taka þrep upp á stýrishús og takmarka klifur upp á stýrishús, skipta út ónýtu timbri og minnka fallhættu. Ísafjarðarbær leggur til 1.950.000 kr. til verksins auk timburs í eigu sveitarfélagsins. Fjárhæðin greiðist út í tvennu lagi, helmingur 1. júlí 2024 og helmingur við verklok 2025.

Að viðgerð lokinni, verður Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða kallað til til úttektar á verkinu. Dugi viðgerðin ekki, skuldbinda Hollvinasamtökin sig til að framkvæma það sem upp á vantar án aðkomu Ísafjarðarbæjar. Þegar samþykki heilbrigðiseftirlits liggur fyrir mun Ísafjarðarbær sækja að nýju um undanþágu fyrir bátinn til Umhverfisstofnunar. Þegar hún liggur fyrir afhenda Hollvinasamtökin bænum bátinn aftur og verður hann áfram eign Ísafjarðarbæjar eins og önnur tæki á leikvellinum. Verði kröfum heilbrigðiseftirlits ekki fullnægt 1. júlí 2025 verður báturinn fjarlægður og nýtt tæki keypt í staðinn árið 2026.

UDN hlaut Fyrirmyndarbikar UMFÍ á unglingalandsmóti

Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi fór með eindæmum vel fram um verslunarmannahelgina og var það haldið í samstarfi við Ungmennasamband Borgfirðinga (UMSB) og sveitarfélagið Borgarbyggð.

Um eitt þúsund þátttakendur á aldrinum 11 – 18 ára voru skráð til leiks í 18 íþróttagreinum og gátu auk þess tekið þátt í fjölda annarra viðburða með fjölskyldum sínum. Þar á meðal var fjöldi íþróttagreina eins og fótbolti, grasblak, frjálsar íþróttir, kökuskreytingar, borðtennis, blak og fleiri greinar.

Tónleikar voru á tjaldsvæðinu á hverju kvöldi. Á lokakvöldinu komu fram GDRN, Júlí Heiðar og Orri Sveinn, sem héldu uppi trylltu stuði.

Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar tilkynnt var við slit Unglingalandsmóts UMFÍ að þátttakendur frá Ungmennasambandi Dalamanna og Norður – Breiðfirðinga (UDN) hafi hlotið Fyrirmyndarbikar UMFÍ.

Bikarinn var afhentur í lok hvers Unglingalandsmóts UMFÍ til héraðs-sambands eða íþróttabandalags sem hefur sýnt fyrirmyndarframkomu innan sem utan keppni á mótinu.   

Íbúum fjölgar í Ísafjarðarbæ

Horft yfir Ísafjörð.

Íbúum Vestfjarða fjölgaði um 55 á tímabilinu 1. desember 2023 til 1. ágúst 2024 samkvæmt tölum Þjóðskrár.

Íbúum í Ísafjarðarbæ fjölgaði um 67 og eru þeir nú 4002 í Kaldrananeshreppi fjölgaði um 9 og í Bolungarvík um 4.

Í Strandabyggð fækkaði um 10 og um 3 bæði í Súðavík og Reykhólahreppi og um 1 í Árneshreppi.

Íbúar í Vesturbyggð eru nú 1447 og er það fækkun um 8 frá því sem var í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi þann 1. desember 2023

Af 63 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 11 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 52 í sveitarfélögum.

Golfmót Bolvíkinga 2024

Hið árlega geysi vinsæla Golfmót Bolvíkinga fer fram  laugardaginn 17. ágúst á Akranesi og er fyrsti rástími kl 9.00.

Búið er að opna fyrir skráningu í gegn um Golfboxið.

Skilyrði fyrir þátttöku er að vera Bolvíkingur að ætt og uppruna, vera giftur einum slíkum eða eiga önnur sterk tengsl við víkina fögru.

Keppnisfyrirkomulag: punktakeppni og vegleg verðlaun í karla- og kvennaflokki.

Aðeins þeir sem eru í klúbbi með löglega forgjöf geta unnið til verðlauna, aðrir leika sem gestir.

Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Verði tveir einstaklingar jafnir í verðlaunasæti, þá sigrar sá sem er með fleiri punkta á seinni níu holunum. Séu þeir enn jafnir gilda síðustu 6 holurnar og þá síðustu 3 holurnar og þá 18 hola. Ef aðilar eru enn jafnir skal kasta hlutkesti.

Þátttökugjald er kr 7.500.

Rástímar eru frá kl. 9:00 til ??, en mótsstjórn áskilur sé rétt til að þjappa ráshópum og skráningum saman verði ekki skráning í alla teigtímana.

Nánar og allar uppslýsingar eru settar inn á Fésbókarsíðu golfmótsins sem er – Bolvíkinga golf, þátttakendur eru beðnir um að tenga sig við þessa síðu.

Með kveðju frá mótsstjórn.

Kristján L Möller
Oddný Hervör Jóhannsdóttir
Ingólfur Hauksson
Kristín María Kjartansdóttir

Nýjustu fréttir