Matvælastofnun hefur á grundvelli laga um fiskeldi tekið stjórnvaldsákvörðun um að gera veiðifélagi að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 3.000.000 krónur fyrir að hafa flutt 150.000 seiði í eldisstöð sem hvorki er með rekstrar- né starfsleyfi til fiskeldis. Telst brotið varða við 2. mgr. 11. gr. laga um fiskeldi nr. 71/2008. Matvælastofnun vinnur jafnframt að því að loka starfsemi stöðvarinnar.
Í frétt Matvælastofnunar segir að við ákvörðun sektarinnar hafi verið tekið tillit til alvarleika brotsins, hvað það stóð yfir lengi, samstarfsvilja veiðifélagsins, hvort um ítrekað brot hafi verið um að ræða, verðmæti ólögmætrar framleiðslu og hvort félagið hafi eða hafi getað haft ávinning af brotinu.
Ekki eru gefnar nánari skýringar á málavöxtum né því um hvaða veiðifélag er að ræða. Um það gilda ákveðin lög sem virðast hafa verið brotin.
Uppfært kl 13:01. Karl Óskarsson, deildarstjóri hjá Matvælastofnun segir um sé að ræða seiðaeldi í Borgarfirði. Í eftirlitsskýrslu Mast sem hefur verið gerð opinber kemur fram að eldið er á vegum Veiðifélags Eystri Rangár og að seiðin voru flutt frá eldisstöðinni á Laxeyri að Eyjarlandi. Sú síðarnefnda hefur starfsleyfi en ekki sú fyrrnefnda.
Hann segir að söluverð pr. seiði 216 krónur sem gerir um 32 m.kr. í áætlað söluverðmæti seiðanna. Þetta er ekki ítrekað brot.