Aðalfundur Grunnvíkingafélagsins í Reykjavík var haldinn í síðustu viku. Samþykkt var að stefna að því að að félagið í Reykjavík verði lagt niður sem fyrst og ný stjórn vinni þá vinnu fram að næstu aðalfundi, sem stefnt er að halda á haustdögum.
Í fundargerð segir að áttahagafélög víða um land hafa verið að leggjast af og að félagsmenn séu hættir að leggja tíma sinn í slík félög.
Þá var einnig samþykkt að selja hlut félagsins í Höfða orlofshúsi. Húsið þarfnast orðið mikils viðhalds og ásókn í gistingu hefur minnkað síðustu ár. Félagið á helming í húsinu á móti Grunnvíkingafélaginu á Ísafirði og hefur verið farið fram á að það heimili sölu hússins.
Í stjórn Grunnvíkingafélagsins í Reykjavík voru kosin Páll Halldór Halldórsson, formaður, Hallfríður Ragúelsdóttir, gjaldkeri, Helga Björg Hafþórsdóttir, meðstjórnandi og Vala Smáradóttir, meðstjórnandi / varamaður.
Félagið er skuldlaust og eignir þess er metnar á 11 m.kr. auk 705 þúsund króna í sjóði.