Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mun dagana 17. til 19. mars sækja Vestfirði heim þar sem hún hyggst efna til samtals við íbúa um utanríkisþjónustuna og hvernig hún þjónar hagsmunum Íslands, bæði heima og erlendis. Komið verður upp tímabundnum starfsstöðvum utanríkisráðherra á Ísafirði og Patreksfirði þar sem íbúar geta sótt opna viðtalstíma og þá verður haldinn opinn fundur á Ísafirði. Þá hyggst ráðherra einnig heimsækja fyrirtæki og kynna sér starfsemi í byggðum Vestfjarða.
Um er að ræða fyrsta viðkomustað utanríkisráðherra í fyrirhugaðri ferðaröð hennar um landið en ætlunin er að ferðast reglulega út á land á næstu mánuðum og koma upp tímabundnum skrifstofum utanríkisráðuneytisins vítt og breitt. Með því vill utanríkisráðherra færa samtalið um utanríkismál nær fólkinu í landinu og gera grein fyrir því hvernig utanríkisþjónustan beitir sér daglega á alþjóðavettvangi í þágu heimilanna, neytenda og fyrirtækja um land allt.
„Eitt af því fyrsta sem ég einsetti mér að gera þegar ég tók við embætti utanríkisráðherra var að skipuleggja ferðaröð um landið til að færa þetta gríðarlega mikilvæga samtal nær þjóðinni allri og draga fram af hverju utanríkisþjónustan er mikilvæg fyrir fólkið okkar í landinu,“ segir Þorgerður Katrín. „Mig langar til að ræða hvernig alþjóðasamstarf hefur áhrif á daglegt líf okkar allra og hvernig við í utanríkisþjónustunni beitum okkur á hverjum degi fyrir bættu og öruggara samfélagi þjóða með mannréttindi allra að leiðarljósi. Ég hlakka mikið til samtalsins við vini mína á Vestfjörðum.“
Boðið verður upp á opna viðtalstíma á Ísafirði og Patreksfirði og þá fer fram opinn kvöldfundur á Ísafirði. Tímasetningar eru sem segir:
- Opinn viðtalstími í Vestfjarðastofu – mánudaginn 17. mars kl. 16.00-18.00
- Opinn fundur á Dokkunni á Ísafirði – mánudaginn 17. mars kl. 20.00
- Opinn viðtalstími á bæjarskrifstofu Vesturbyggðar – þriðjudaginn 18. mars kl. 16.00-18.00