![kristjanthor-iso](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2017/08/kristjanthor-iso-696x435.jpg)
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, heimsótti Ísafjörð í vikunni og kynnti sér starfsemi Háskólaseturs Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða auk þess að taka þátt í námskeiði kennara um Biophiliu menntaverkefnið sem fór fram í Grunnskólanum á Ísafirði. Ísafjörður skartaði sínu fegursta á þessum degi, og á vef ráðuneytisins er haft eftir ráðherranum að það sé regla fremur en undantekning.
smari@bb.is