Miðvikudaginn 19. febrúar er opinn kynningarfundur í Félagsheimilinu þar sem fram fer kynning nýju Aðalskipulagi Strandabyggðar 2021-2033.
Fulltrúar frá Landmótun verða á fundinum og kynna aðalskipulagið og einnig verða þar fulltrúar frá Fasteignaumsýslunni og kynna áform um byggingu hótels á Hólmavík. Íbúar er hvattir til að fjölmenna og kynna sér þær áherslur sem nýtt aðalskipulag felur í sér og þá uppbyggingu sem er framundan á Hólmavík. Fundurinn hefst kl 17.30.
Fimmtudaginn 20. febrúar er síðan lokaíbúafundur Sterkra Stranda sem einnig er haldinn í Félagsheimilinu. Þar verður sagt frá íbúakönnun sem staðið hefur yfir að undanförnu, farið yfir stöðu einstakra verkefna og unnið í hópavinnu varðandi ávinning verkefnisins.
Fundarstjóri verður Aðalsteinn Óskarsson, sviðsstjóri byggðamála, hjá Vestfjarðastofu. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi á fundinum. Fundurinn hefst kl 18.00.