Grímsey í Steingrímsfirði

Grímsey í Steingrímsfirði er stærst eyja fyrir Ströndum. Þar var föst búseta fyrir langa löngu og síðar var gert út þaðan að vetrarlagi um árabil.

Vitinn var reistur 1915. Hann eyðilagðist í loftárás Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni og var endurbyggður 1949.

Yrðlingar voru fluttir út í eyjuna fyrri hluta sumars um árabil og aldir þar. Þeir voru síðan veiddir á veturna, þegar skinning voru verðmætust og bezt.

Ferskvatn er af skornum skammti í eyjunni og kemur helzt upp í klettunum vestantil. Uppspretta þar heitir Gvendarbrunnur eftir vígslu Guðmundar biskups góða og bregzt aldrei. Þarna er stór lundabyggð og ferðir út í eyju eru í boði frá Drangsnesi og Bæ á Selströnd.

Af vefsíðunni is.nat.is

DEILA