Dynjandisheiði: Borgarverk með lægsta tilboð

Frá Dynjandisheiði. Nýi vegurinn er glæsilegur. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Í dag voru opnuð tilboð í lokaáfanga Dynjandisheiðar. Þrjú tilboð báust. Borgarverk ehf var með lægasta tilboð 1.482.160.020 kr. sem er 84,1% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar 1.761.824.081 kr.

Næst lægsta tilboð var frá Suðurverk hf 1.820.690.000 kr. og þriðja tilboðið bast frá Ístak hf., Mosfellsbær og var það 2.253.948.316 kr.

Boðið var út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 7,2 km kafla og um 0,8 km kafla á Dynjandavegi. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði. Innifalið er gerð keðjunarplans og áningarstaðar.

Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

DEILA