Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2025 vegna sjöttu úthlutunar sjóðsins, hægt verður að sækja um til miðnættis 28. febrúar 2025.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.
Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Því hefur stjórn sjóðsins ákveðið að veita styrki í 4 styrkjaflokkum Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóð.
Til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru rúmar 477 milljónir króna.