Safnahúsið hefur tekið í notkun nýjan vef, eftir umtalsverðan undirbúning.
Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að eldri vefur safnsins var tekinn í notkun hefur ýmislegt breyst bæði í tæknimálum almennt og í starfi safnanna.
Vonir standa til þess að með þessum nýja vef verði hægt að miðla upplýsingum um starfsemi safnanna og safnkost þeirra með enn betri hætti en hingað til. Vefurinn er sérstaklega þróaður fyrir Safnahúsið og býður meðal annars upp á möguleika fyrir söfnin til að tengja innri skráningarkerfi beint við miðlun á vefnum í framtíðinni.
Forritun og rekstur vefsins er unnin innanhúss, samhliða starfi við stafræna miðlun á vegum einstakra safna. Hönnun vefsins byggir á ráðgjöf og grunni frá Mikaro ehf.