Systkini frá Tröllatungu í Strandabyggð hafa verið valin til þátttöku í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar , sem fram fer Bakuriani og Batumi í Georgíu dagana 8. til 17. febrúar nk. Það er Framkvæmdastjórn ÍSÍ sem hefur staðfest íslenska hópinn á hátíðinni, byggt á tillögum Skíðasambands Íslands og Skautasambands Íslands.
Árný Helga og Stefán Þór Birkisbörn voru valin í 6 manna hóp í skíðagöngu á vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Georgíu 8.-17. febrúar næstkomandi.
Það gerist ekki oft að systkini séu valin og það frá Ströndum.
Árný og Stefán kepptu lengi undir merkjum skíðafélags Strandamanna en Árný færði sig yfir til Skíðafélags Akureyrar 2023 og Stefán ári síðar 2024 þar sem þau æfa skíðagöngu og stunda nám við VMA. Árný Helga er 17 ára og Stefán Þór aðeins 16 ára.
Móðir þeirra Sigríður Drífa Þórólfsdóttir sagði í samtali við Bæjarins besta að þau systkini hafi mikið til æft á túnunum í Tröllatungu, þar sem pabbi þeirra lagði spor með sleða. En eftir því sem aðstæður hjá skíðafélagi Strandamanna varð betri var farið að nýta þær aðstæður meira.
Faðir þeirra er Birkir Stefánsson frá Tröllatungu, mikill landhlaupari og gönguskíðagarpur.
Stefán Þór Birkisson með gönguskíðin.
Myndir: aðsendar.