Bíldudalur: samningur um lóð undir hótel undirritaður

Frá undiitun samningsins. Frá vinstri: Jens H. Valdimarsson, Valdimar Gunnarsson og Gerður B. Sveinsdóttir, bæjarstjóri. Mynd: aðsend.

Undirritaður hefur verið samningur um lóð fyrir hótel á Bíldudal milli Vesturbyggðar og BA 67 ehf.

Einn aðstandenda verkefnisins er Jens Valdimarsson og sagði hann að áformað væri að 50 herbergi yrðu í hótelinu. Byggð yrðu þrjú hús, sem væri endurgerð þriggja fornfrægra húsa á Bíldudal og þau tengd saman með glerskálum og fundaherbergi.

Húsið þrjú eru Bulls hús, timburhús frá Noregi sem flutt var til landsins vegna hvalveiða og síðar sett niður á Bíldudal. Annað húsið er hús sem Pétur Thorsteinsson flutti til Bíldudals um 1890 og enn eru til sperrur úr því húsi og þar verður veitingasalur og loks Maronshús sem Gísli Jónsson alþm. og bóðir Marons byggði.

Unnið er að hönnun og huga þarf að vegagerð ásamt öðrum undirbúningi..

Grafísk teikning af hótelteikningunum.

DEILA