Bæjarráð Ísafjarðarbæjar ræddi á fundi sínum í gæ málefni Reykjavíkurflugvallar. Lögð var fram yfirlýsing Miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi vegna lokunar flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli. Þar er lýst yfir þungum áhyggjum vegna þessara takmarkana þar sem óheft aðgengi sjúkraflugvéla að Reykjavíkurflugvelli er í mörgum tilfellum lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins.
„Gögn um starfsemi sjúkraflugs árið 2024 sýna að a.m.k. 15% sjúkrafluga um Reykjavíkurflugvöll eiga sér stað í myrkri og þar af er umtalsverður hluti um þær flugbrautir sem nú hefur verið lokað. Það er því ljóst að lokanir umræddra flugbrauta munu hafa áhrif á batahorfur og lífslíkur tuga sjúklinga ár hvert og er á skjön við lög um jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.“
Bæjarráðið bókaði eftirfarandi:
„Reykjavík ber ríka skyldu sem höfuðborg til að tryggja að samgöngur séu greiðar og öruggar við aðra landshluta. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hvetur Reykjavíkurborg, Isavia og Samgöngustofu um að flýta fellingu þeirra trjáa sem um ræðir.“