Mannamót í Kórnum

Mannamót er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni í samstarfi við Markaðsstofur landshlutanna og gott tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.

Markmið og tilgangur er að skapa vettvang þar sem ferðaþjónar á landsbyggðinni kynna þjónustu sína og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og í ár var í fyrsta sinn einnig boðið erlendum gestum.

Mannamót hafa þá sérstöðu að í sýningunni taka þátt fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum, gömul og ný, frá öllum landshlutum. Segja má að Mannamót séu fyrst og fremst kjörinn vettvangur til tengslamyndunnar innan ferðaþjónustunnar; þar má efla tengsl við núverandi viðskiptavini, mynda ný tengsl og ekki síður til að kynnast samstarfsaðilum um allt land.

Aldrei hafa fleiri vestfirskir sýnendur skráð sig til leiks, en tuttugu fyrirtæki víðsvegar af Vestfjörðum verða í Kórnum í dag á milli klukkan 12 og 17.

DEILA