Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur, prófessors í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
Í bókinni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Sjöundármál eru almenningi vel kunn en þeim hefur margsinnis verið lýst út frá sjónarhorni yfirvalda. Í bókinni segir Bjarni hins vegar sjálfur frá æviskeiði sínu um leið og lífshlaup hans er tengt við tíðaranda 18. aldar. Frásögnin endar á aftöku Bjarna í Kristiansand í Noregi.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjálf frá þessum slóðum. Hún er Barðstrendingur, frá Breiðalæk á Barðaströnd sem er skammt frá Sjöundá á Rauðasandi. Með bókinni vill hún ljá Bjarna rödd og segir söguna út frá sjónarhóli hans.
Rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson gerði þessa atburði að uppistöðu í sögulegri skáldsögu sinni , Svartfugl, sem kom út 1929.
Eftir Steinunni liggja verðlaunabækurnar Sagan af klaustrinu á Skriðu (2012) og Leitin að klaustrunum (2017) sem Sögufélag gaf út. Þá gaf Routledge út bók hennar Monastic Iceland (2023).
Háskólaútgáfan gefur bókina um Bjarna út en hún byggir á rannsókn Steinunnar á aftökum eftir siðaskipti á Íslandi.
Steiunn Kristjánsdóttir á kynningu á bókinni í Davíðshúsi á Akureyri.
Mynd: Ásthildur Sturludóttir.