Samkaup færir út kvíarnar

Undirritað hefur verið samkomulag um yfirtöku Samkaupa á Heimkaupum með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafund beggja félaga. Samkaup er yfirtökufélagið og undir rekstri Samkaupa verða því verslanir undir merkjum 10-11, Prís, Extra auk þriggja þægindaverslana sem reknar eru á þjónustustöðvum Orkunnar. Þá á Heimkaup eignarhlut í veitingafélaginu Clippers ehf. sem m.a. rekur Sbarro segir í fréttatilkynningu frá Samkaupum.

Samruninn er í samræmi við framtíðarstefnu Samkaupa og felur í sér margvísleg tækifæri og breikkar tekjugrunn félagsins.

Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa:

„Samkaup er yfirtökufélag í þessum samruna og ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu eftir vinnu síðustu missera. Ég er sannfærður um að sameinað félag eigi eftir að gera góða hluti til hagsbóta fyrir neytendur.

Við sjáum mikil tækifæri í samrunanum sem mun styrkja rekstrarstöðu Samkaupa til lengri tíma en við væntum töluverðar samlegðar í samrunanum. Nettó hefur verið góðri aukningu undanfarið með breyttri verðstefnu og með stækkun verslananetsins mun staða Nettó styrkjast enn frekar. Staða okkar gagnvart birgjum mun styrkjast til muna og samkeppnisstaða okkar á markaði sömuleiðis. Viðskiptavinir okkar munu að sjálfsögðu njóta góðs af því.

Verslanir okkar á landsbyggðinni, Nettó, Kjörbúðir og Krambúðir, leika lykilhlutverk í framtíðarsýn Samkaupa. Birgðakerfi okkar gerir okkur kleift að flytja vörur milli landshluta ódýrar en nokkur annar aðili og með innkomu Heimkaupa í samstæðuna sjáum við afar spennandi möguleika til vaxtar.“

DEILA