Nú fyrir skömmu var reist þriðja raðhúsið sem áformað var að byggja á þessu ári á Reykhólum.
Það er Brák íbúðafélag sem byggir þetta hús.
Þá eru komin upp öll húsin sem ákveðið var að ráðast í að byggja að þessu sinni, auk þeirra var flutt á staðinn lítið tilbúið hús, sem áformað er að byggja við síðar.
Alls munu því 13 íbúðir bætast við á Reykhólum og þarf að fara hálfa öld aftur í tímann til að sjá viðlíka uppbyggingu íbúða, en árin 1975-6 voru byggð 11 einbýlishús.
Mynd síðan í júní s.l. svipað sjónarhorn og á efri mynd