Erlendir ríkisborgarar 80.546

Alls voru 80.546 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 6.123 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 8,2%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 888 eða 22,5% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 272 eða 50,6%.

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 927 og eru nú 26.539 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.287 einstaklinga eða um 0,4%.

DEILA