Hagstofa Íslands tók til starfa árið 1914. Hagstofan er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir forsætisráðuneytið.
Stofnunin er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og hefur forystu um framkvæmd hennar og samskipti við alþjóðastofnanir á þessu sviði. Hagstofustjóri er Hrafnhildur Arnkelsdóttir.
Hagstofan safnar tölulegum upplýsingum um íslenskt samfélag, vinnur úr þeim og miðlar til notenda. Miðlun hagtalna stuðlar að upplýstri þjóðfélagsumræðu og er grundvöllur lýðræðislegra ákvarðana.
Lögð er áhersla á góða þjónustu og fagmennsku þar sem áreiðanleiki og skilvirkni eru höfð að leiðarljósi. Starfsmenn Hagstofunnar eru um 120.