Hreppsnefnd Kaldrananeshrepps hefur til umfjöllunar fjárhagsáætlun fyrir 2025 og þriggja ára áætlun fyrir 2026-2028 og verður síðari umræða til afgreiðslu á næsta fundi.
Gjaldskrár hafa hins vegar verið samþykktar og þær almennt hækka um 5%. Fyrir hitaveitu Drangsnes mun vatnsgjald um vatnsmæli fyrir rúmmetra vatns hækki um 5%, notendagjöld hækki um 5% og eingreiðslugjöld hækki um 5%.
Sama á við um gjaldskrá vatnsveitu, fráveitur, hafnar, sorphirðu og sorpeyðingar.
Þær framkvæmdir sem til umræðu eru fyrir næsta ár eru:
Þær framkvæmdir sem ræddar voru:
- Hitaveita norðan við Drangsness
- Uppbygging á Vitavegi
- Björgunarmiðstöð
- Iðnaðar- og þróunarsvæði
- Gangstéttir á Drangsnes
- Viðhald Sundlaugarinnar á Drangsnesi
- Viðhald fasteigna í eigu Kaldrananeshrepps
- Viðhald skólalóðar Grunnskóla Drangsness og uppbygging nýs leikvallar
- Viðhald hafnarmannvirkja
- Slökkvilið Kaldrananeshrepps
- Ferðamannaaðstaða
- Uppbygging skólamannvirkja