Hörður Grímsson kominn á söguskilti í Súðavík

Stefán Máni gaf nýlega út sína tólftu bók um lögreglumanninn Hörð Grímsson, Dauðinn einn var vitni, og hlaut hún tilnefningu til Blóðdropans.  

Á dögunum var sett upp og afhjúpað söguskilti um þennan son Súðavíkur.  

Með þessu er tekið ofan fyrir Herði og bókmenntasögunni í Súðavík segir í frétt heimasíðu Súðavíkurhrepps.  

Stefán Máni hefur komið á framfæri þakklæti til Braga Þórs Thoroddsen sveitastjóra sem og allra Súðvíkinga fyrir hjálpina og góðar móttökur.  

Dauðinn einn var vitni er 12. bókin um rauðhærða risann Hörð.  

DEILA