Rúmlega 600 þúsund íbúar á Íslandi árið 2074

Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar verða íbúar á Íslandi 605 þúsund árið 2074 og gætu orðið 500 þúsund innan 15 ára. Íbúum á Íslandi fjölgar úr 384 þúsund (áætlaður mannfjöldi, sjá frétt í mars) á Íslandi árið 2024 í 504-790 þúsund íbúa á næstu 50 árum með 90% líkum. Miðað við háspá eru 5% líkur á að íbúar verði fleiri en 790 þúsund og 95% líkur á þeir verði færri. Lágspá gefa til kynna að 5% líkur séu á að íbúar verði færri en 504 þúsund og 95% líkur á að þeir verði fleiri.

Gert ráð fyrir eftirfarandi breytingum samkvæmt mannfjöldaspánni:

  • Hlutfall íbúa á vinnualdri (16 til 74 ára) mun lækka úr 74% árið 2024 í 70% árið 2074 samkvæmt miðgildi spárinnar.
  • Eftir 2052 verður elsti aldurshópurinn (eldri en 65 ára) fjölmennari en sá yngsti (yngri en 20 ára) samkvæmt miðgildi spárinnar.
  • Miðaldur Íslendinga var 36 ár árið 2024 og gert er ráð fyrir að hann verði 50 ár árið 2074.

Mannfjöldaspáin byggir á líkönum um frjósemi, dánartíðni og búferlaflutninga og eru niðurstöðurnar notaðar fyrir heildarmannfjöldaspána. 

Frjósemishlutfall verður 1,4 barn á hverja konu (13-55 ára) árið 2074 samkvæmt miðgildi spárinnar eða á bilinu 1,3 til 1,5 börn með 90% líkum. Til samanburðar var meðalfrjósemishlutfall innan Evrópusambandsins 1,4 börn á hverja konu árið 2022. Samkvæmt miðgildi spárinnar aukast lífslíkur kvenna við fæðingu og verða 89 ár árið 2074, samanborið við 84 ár árið 2023, og lífslíkur karla hækka úr 81 ári í 84 ár, þ.e. aukast um 0,1 ár fyrir hvert ár spárinnar. Fjöldi aðfluttra verður meiri en fjöldi brottfluttra allt tímabilið, fyrst og fremst vegna búferlaflutninga erlendra ríkisborgara. Nettó leitni búferlaflutninga mun liggja á milli 1000 og 9000 einstaklinga næstu 50 árin með 90% líkindum.

Öldrun þjóðarinnar stafar af minnkandi frjósemi og auknum lífslíkum. Þessi þróun er þó hægari á Íslandi en í ríkjum ESB vegna ungs aldurs erlendra ríkisborgara sem flytjast til landsins og hás frjósemishlutfalls miðað við meðaltal innan sambandsins. Til samanburðar var miðaldur í ríkjum ESB 44 ár árið 2021 en gert er ráð fyrir að því gildi verði ekki náð á Íslandi fyrr en árið 2050.

DEILA