Kolaport & Basar í Félagsheimilinu í Hnífsdal

Næstkomandi laugardag og sunnudag kl. 14:00 – 17:00 verður hið árlega Kolaport & Basar kvenfélagsins Hvatar í Félagsheimilinu í Hnífsdal.

Ýmiskonar heimagert góðgæti verður til sölu m.a. sérrísíld, rúgbrauð, smákökur og piparkökuhús.
Hið margrómaða hnallþóruborð verður á sínum stað.
Auk þess verður mikið af notuðum fatnaði, skóm, jólaskrauti og húsbúnaði sem selt verður á slikk.
Og samkvæmt venju verður hægt að tilla sér niður og kaupa nýbakaðar vöfflur og heitt súkkulaði á staðnum.
Allur ágóði rennur til góðgerðamála.

DEILA