Fiskeldi: fjórðungs aukning útflutningsverðmæta í október – milljarður kr. á viku

Fram kemur í Radarnum, fréttabréfi Samtaka í sjávarútvegi, að útflutningsverðmæti eldisafurða nam um 6,6 milljörðum króna í október. Það er 26% aukning miðað við október í fyrra á föstu gengi.

Á fyrstu tíu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða þar með komið í tæpa 42 milljarða króna. Það hefur aldrei verið meira á tilgreindu tímabili og er um 23% aukningu að ræða frá sama tímabili í fyrra á föstu gengi. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í október sem birtar voru síðustu viku.

Að jafnaði eru útflutningsverðmætin um einn milljarður króna á viku allt árið. Vikurnar eru orðnar 44 og heildaútflutningsverðmætin 42 milljarðar króna. Stærstur hlutinn kemur frá Vestfjörðum.

Fiskeldið helsti vaxtarbroddurinn síðustu 10 árin

Síðustu 10 árin hefur aukningin í útflutningsverðmætum borin uppi af fiskeldi og útflutningi lyfja og lækningatækja. Í krónum talið hefur aukningin verið mest í útflutningi á lyfjum og lækningatækjum undanfarinn áratug. Sé hins vegar tekið mið af hlutfallslegri aukningu, þá hefur hún hvergi verið meiri en í fiskeldi. Þannig voru útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu tíu mánuðum ársins ríflega sjöfalt meiri en þau voru á sama tímabili árið 2015, að teknu tilliti til gengisbreytinga.

Radarinn segir frá því að ekki hafi verið gefin út efnahagspá hér á landi að undanförnu án þess að minnst sé á fiskeldi, hvort sem það er í tengslum við útflutning eða fjárfestingu. „Má hér nefna hagspár Íslandsbanka Landsbankans og Hagstofu Íslands. Allir þessir aðilar gera ráð fyrir auknum útflutningi á næstu árum og reikna með að sá vöxtur verði meðal annars knúinn áfram af auknum útflutningi eldisafurða. Það verður að teljast afar jákvætt, enda skapar fiskeldi fjölbreytt og vel launuð störf sem falla vel að því markmiði að Ísland verði áfram hálaunaland í alþjóðlegum samanburði með ein bestu lífskjör í heimi.“

DEILA