Útkall í ofsabrimi heitir nýjasta Útkallsbókin eftir Óttar Sveinsson.
Í bókinni er greint frá baráttu sjö manna upp á líf og dauða þegar Goðinn sekkur í ofsabrimi í Vöðlavík (1994).
Mennirnir voru að gefast upp þegar þyrla birtist í ofsaveðrinu. Eftir það gerast óvæntir hlutir sem enda með einni tryllingslegustu flugferð Íslandssögunnar.
Allar Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa vermt efstu sæti metsölulistanna í 30 ár.