Skipulagsstofnun staðfestir stækkun Mjólkárvirkjunar

Með staðfesting á breyttu aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar hefur Skipulagsstofnun heimilað stækkun Mjólkárvirkjunar.

Skipulagsstofnun staðfesti, 31. október 2024, breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008 – 2020 sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. september 2024.

Í breytingunni felst stækkun Mjólkárvirkjunar. Á iðnaðarsvæði er gert ráð fyrir hækkun stíflu, afmörkun nýs efnistökusvæðis og gerð veituskurðs við Tangarvatn, ásamt stöðvarhúsi nýrrar 0,5 MW virkjunar við Hólmavatn.

Heimilað er að leggja nýjan aðkomuveg, auk jarðstrengs og niðurgrafna þrýstipípu á milli fyrrgreindra vatna uppá Glámuhálendi.

Einnig er mörkuð stefna um nýtt iðnaðarsvæði og stækkun ferjubryggju á nýju athafnarsvæði.

DEILA