Nýlega lauk 64. Landsþingi Landssambands hestamannafélaga.
Á þinginu var kosið til formanns og var það Linda Björk Gunnlaugsdóttir sem var rétt kjörinn formaður og er hún fyrsta konan til að gegna því embætti.
Á landsþingi voru 8 einstaklingum veitt Gullmerki sambandsins.
Það voru þau: Halldór Sigurðsson, Gunnar Örn Guðmundsson, Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, Jónína Stefánsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Helga Claessen, Pálmi Guðmundsson og Sigurður Ævarsson.