Sviðaveisla Kiwanisklúbbsins Básar á morgun

Á morgun verður í Sigurðarbúð á Ísafirði, húsnæði Kiwanisklúbbsins Básar, hin árlega sviðaveisla. Húsið opnar kl 19 og verða margvíslegar gerðir af sviðum á boðstólum og tilheyrandi meðlæti.

Sviðaveislan er ein af fjáröflun félagsins og rennur afrakstur starfsins til ýmissa þarfra samfélagsverkefna. Má þar nefna m.a. að klúbburinn styrkti Píetasamtökin með 350 þús króna framlagi í fyrra í tilefni af því að opnuð var starfsstöð á Ísafirði. Í januar styrkti Kiwanis skólakór Tónlistarskólans til Danmerkurferðar með rausnarlegri gjöf.

DEILA