Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Arna Lára hefur undanfarna daga verið sterklega orðuð við framboð fyrir Samfylkinguna.
Hún segir að ákvörðunin um að fara í framboð hafi ekki verið auðveld, enda sé gaman í vinnunni og gott að fylgjast með Ísafjarðarbæ vaxa og dafna.
Hún vonast til þess að ákvörðun uppstillingarnefndar muni liggja fyrir í lok vikunnar.