Öll þrjú bókasöfnin í Vesturbyggð hafa nú formlega verið sameinuð í eitt bókasafn.
Það heitir Bókasafn Vesturbyggðar og er hvert og eitt útibú með sitt bæjarheiti fyrir aftan; Bókasafn Vesturbyggðar Bíldudal, Bókasafn Vesturbyggðar Patreksfirði og Bókasafn Vesturbyggðar Tálknafirði.
Breytingin fyrir lánþega er sú að nú er hægt að fá lánað í einu útibúi og skila í öðru, allt eftir hentugleika og allt með einu skírteini.