Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri í Strandabyggð segir að minnisblað KPMG verði lagt fram til kynningar á sveitarstjórnarfundi nk. þriðjudag. Hann segir að til viðbótar minnisblaðinu væri rétt að skoða fundargerð sveitarstjórnar frá ágúst 2021, „en þar er staðfest umfang styrkveitinga til Jóns Jónssonar sl. 20 ár frá þeim tíma, og nema greiðslurnar rúmri 61 milljón. Það er sú tala sem ég og konan mín höfum bent á og kemur sú tala frá skrifstofustjóra og sveitarstjórn þess tíma, ekki frá okkur. Stundum er rétt að hafa staðreyndirnar með.“