Hlíf ráðin félagsmálastjóri  Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

Hlíf Hrólfsdóttir hefur verið ráðin félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.

Starfinu gegndi áður Soffía Guðrún Guðmundsdóttir.

Hlíf er þroskaþjálfi, upprunnin  á Hólmavík og hefur starfað þar um langt árabil. Hún er því flestum hnútum kunnug á starfssvæði Félagsþjónustunnar.

DEILA