Sveitarstjórnir eða fjallskilanefndir skulu árlega fyrir 20. ágúst, semja fjallskilaseðil þar sem mælt er fyrir um hvernig fjallskilum skuli hagað og réttir ákveðnar. Þar skal tilnefna leitarstjóra og réttarstjóra, einn eða fleiri, sem stjórni því að réttir og leitir fari vel og skipulega fram.
Þetta hefur nú víðast hvar verið gert og venju samkvæmt birtir Bændablaðið lista yfir helstu réttir landsins og hér fyrir neðan má sjá réttardaga á Vestfjörðum.
Vestfirðir
Eyrarrétt á Eyri í Kollafirði, Reykhólahreppi, A-Barð. | Laugardaginn 7. sept. |
Grundarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. | Sunnudaginn 15. sept. |
Hjarðardalsrétt í Hjarðardal í Dýrafirði | Sunnudaginn 22. sept. |
Hraunsrétt við Hraun í Hnífsdal í Skutulsfirði | Laugardaginn 21. sept. |
Innri-Múlarétt á Barðaströnd, V-Barð. | Mánudaginn 23. sept. |
Kinnarstaðarrétt í Reykhólahr., A-Barð. | Ekki réttað í ár |
Kirkjubólsrétt í Steingrímsfirði, Strand. | Sunnudagana 22. sept. og 6. okt. kl. 14.00. |
Kirkjubólsrétt við Kirkjuból í Engidal í Skutulsfirði | Laugardaginn 21. sept. |
Kjósarrétt í Árneshreppi, Strand. | Laugardaginn 21. sept. |
Krossárrétt | Laugardaginn 14. sept. kl. 16.00 |
Króksfjarðarnesrétt í Reykhólasv., A-Barð. | Laugardaginn 21. sept. |
Melarétt í Árneshreppi, Strand. | Laugardaginn 14. sept. |
Miðhús í Kollafirði, Strand. | Vantar upplýsingar |
Ný rétt í Kollafirði í stað Miðhúsaréttar | Sunnudagana 22. sept. og 6. október kl. 16.00 |
Minni-Hlíð í Hlíðardal, Bolungarvík | Laugardaginn 21. sept. |
Skarðsrétt í Bjarnarfirði, Strand. | Laugardaginn 21. sept. kl 14.00 |
Skeljavíkurrétt í Steingrímsfirði, Strand. | Föstud.13. sept. og laugard. 28. sept. kl. 16.00. |
Staðardalsrétt í Steingrímsfirði, Strand. | Sunnudagana 22. sept. og 6. október kl. 15.00. |
Staðarrétt í Reykhólahreppi, A-Barð. | Sunnudagana 22. sept. og 6. október kl. 15.00. |
Staðarrétt í Steingrímsfirði, Strand. | Sunnudagana 22. sept. og 6. október kl. 15.00. |
Staður, Reykhólahrepp A-Barð. | Sunnudaginn 15. sept. |
Syðridalsrétt í Bolungarvík | Laugardaginn 14. sept. |
Traðarrétt við Tröð í Bjarnardal í Önundarfirði | Laugardaginn 21. sept. |
Vaðalsrétt á Barðaströnd, V-Barð. | Sunnudaginn 22. sept. |