Snjallræði er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík. Bakhjarlar eru: Marel, Vísindagarðar og Reykjavíkurborg.
Markmið Snjallræðis, sem nú er haldið í sjötta sinn, er að styðja við nýsköpunarteymi sem vilja láta gott af sér leiða og jafnframt styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Þungamiðja Snjallræðis eru vinnustofur á sviði nýsköpunar og hönnunarhugsunar sem haldnar eru í samstarfi við MITdesignX.
Teymin taka þátt í fjórum tveggja daga vinnustofum hér á landi á vegum MIT designX. Vinnustofurnar fara fram á fjögurra vikna fresti en þess á milli njóta teymin handleiðslu færustu sérfræðinga hér á landi við að þróa lausnirnar áfram.
Vinnustofurnar eru þemaskiptar og taka á mismunandi þáttum í þróunarferlinu, allt frá þarfa- og hagaðilagreiningu, hönnun á sjálfbæru viðskiptamódeli og fjárhagsáætlunum yfir í tengslamyndun og framkomu.
Allar upplysingar eru á vefsíðu verkefnisins.