Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð hafa gengið til samninga um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu.
Samningurinn er hluti af verkefninu Gott að eldast, aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks.
Heilbrigðisstofnun mun taka að sér rekstur heimastuðnings í samstarfi við sveitarfélagið. Lögð verður áhersla á persónumiðaða nálgun þar sem fagmenn vinna saman í teymisvinnu. Þjónustugátt verður ein, sem þýðir að allar beiðnir um þjónustu fara í gegnum eitt kerfi og mat á þeim verður sameiginlegt verkefni félags- og heilbrigðisstarfsfólks.
Markmiðið með verkefninu er að auka gæði þjónustu fyrir eldra fólk, minnka líkur á að fólk falli á milli þjónustukerfa og fækka innlögnum á sjúkrahús og hjúkrunarheimili. Með samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu er stefnt að því að þjónustan verði í einu flæði og að brugðist sé fljótt við breyttum þörfum notenda.
Með þessum samningi er stigið mikilvægt skref í átt að betri og skilvirkari þjónustu við eldra fólk í Vesturbyggð, þar sem hámarks nýting fjármuna er tryggð án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar. Vonir standa til um að þessi samþætta heimaþjónusta muni leiða til betri lífsgæða fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins.