Markaðshelgin í Bolungavík hefst á morgun og stendur fram á sunnudag. Dagskráin er einkar vegleg enda á kaupstaðurinn hálfrar aldar afmæli á þessu ári.
Eins og undanfarin ár mun efri bærinn skreyta allt, hátt og lágt í rauðum lit og neðri bærinn skreytir í bláum. Litirnir tákna hafið og eldmóð bæjarbúa. Fyrirtæki bæjarins taka sér græna litinn til skreytinga.
Á morgun verða valið best skreyttu húsin. Þá verður konukvöld í Bjarnabúð og dansskemmtun í Félagsheimilinu.
Á föstudaginn verður m.a. matarveisla í Einarshúsi og brekkusöngur í Stebbalaut.
Markaðstorg verður á laugardaginn við Félagsheimilið og útitónleikar um kvöldið.
Á sunnudaginn verður Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri með tónleika í Félagsheimilinu.
Fimmtudagur 4. júlí
17:00 Skrautfjaðrir Bolungarvíkur – verðlaunakeppni hefst!
19:30-21:30 Konukvöld í Bjarnabúð – tilboð og léttar veitingar
20:00 Sigga Ózk og dansarar í Félagsheimili Bolungarvíkur
Föstudagur 5. júlí
11:00-14:00 Söngnámskeið Siggu Ózkar í Tónlistarskóla Bolungarvíkur í tilefni 60 ára afmæli Tónlistarskólans.
16:30-18:30 Sundlaugarpartý í Musteri vatns og vellíðunar með Húgó og DJ Eysa – frítt í sund allan daginn!
17:00 Markaðsmótið á Syðridalsvelli
17:30-20:00 Matarveislan „Frá fjöru til fjalls“ í Einarshúsinu – bókið borð í síma 456-7901
19:30-20:00 Skrúðganga litanna – Skrautfjaðrir Bolungarvíkur
20:00-21:00 Brekkusöngur í Stebbalaut með Bigga Olgeirs. Boðið verður upp á grillaðar pylsur fyrir gesti.
21:00 Kráargáta (pubquiz) á Verbúðinni
Laugardagur 6. júlí
13:00-17:00 Markaðstorg Bolungarvíkur ! Fjölbreytt, alþjóðlegt og skemmtilegt við Félagsheimili Bolungarvíkur
- Andri Ívars verður kynnir
- Tónleikar söngnemenda eftir námskeiðið með Siggu Ózk
- Hoppukastalar
- Andlitsmálning
- Stigið á bak með hestamannafélaginu Gný
- Fornbílasýning
17:30-20:00 Matarveislan „Frá fjöru til fjalls“ í Einarshúsinu – bókið borð í síma 456-7901
19:00-21:00 Gleðistund (happy hour) á Verbúðinni
20:00-23:00 Útitónleikar á Aðalstræti
- Hipsumhaps
- Húgó og Nussun
- Floni
- Bríet
23:30-02:00 Ball með hljómsveitinni Húsið á sléttunni í Félagsheimili Bolungarvíkur
Sunnudagur 7. júlí
15:00-17:00 Tónleikar Ólafs Kristjánssonar í Félagsheimili Bolungarvíkur