Fiskistofa hefur tilkynnt 567 útgerðaraðilum á strandveiðum að skip þeirra hafi veitt umfram það afla hámark sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð strandveiða í maí.
Samkvæmt lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla er lagt á gjald vegna umframafla á strandveiðum.
Eftir 20. júní verður hægt að greiða gjaldið í heimabanka en þá munu reikningar vegna gjaldsins verða aðgengilegir í stafrænu pósthólfi á Ísland.is.
Umframafli skipa á strandveiðum var um 83 tonn.
Þá hefur Fiskistofa einnig birt áætlun um fjölda veiðidaga sem eftir eru á strandveiðum.
Áætlunin byggir á meðalveiði þeirra veiðidaga sem þegar er lokið, miðað við hana má gera ráð fyrir að strandveiðum ljúki í annarri viku júlí mánaðar eða um 10 júlí.