Bolungavíkurkaupstaður, utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslan stefna að því að undirrita samkomulag um næsta nágrenni við útsýnispallinn á Bolafjalli eigi síðan en 10. júní næstkomandi. Miðað er við að Vegagerðin verði aðili að samkomulaginu.
Í viljayfirlýsingu segir að undirritaðir aðilar lýsa því yfir að stefnt sé að þvi að ljúka gerð heildarsamkomulags varðandi framtíðarfyrirkomulag vegar innan öryggissvæðisins á Bolafjalli. Samkomulagið lúti m.a. að:
- ástandskröfum til vegarins með tilliti til nauðsynlegs aðgengis að ferðamannastaðnum
- endurbótum á núverandi vegi til að tryggja sem best aðgengi
- reglubundnu viðhaldi vegarins til framtíðar
- skiptingu kostnaðar af veghaldinu
- ábyrgð á notkun vegarins
- almennri umsjón með veghaldinu og ákvarðanatöku varðandi opnun/lokun
- nauðsynlegum takmörkunum tengdum öryggissvæðinu á Bolafjalli
Samhliða lýsa aðilar því yfir að ekki séu gerðar athugasemdir við að Bolungarvíkurkaupstaður hefji þegar undirbúning að gerð bílastæðis á Bolafjalli í samræmi við gildandi deiliskipulag, sem ætlað er fyrir ökutæki ferðamanna og annarra gesta á svæðinu, og að stefnt sé að því að Bolungarvíkurkaupstaður innheimti bílastæðagjöld af notendum.
Bæjarráð Bolungavíkurkaupstaðar hefur rætt viljayfirlýsinguna og fól bæjarstjóra að undirrita hana.