Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Ásbjörn Blöndal, framkvæmdastjóri þróunar- og auðlindasviðs HS Orku og stjórnarformaður VesturVerks, skrifuðu í gær undir samkomulag vegna undirbúnings tengingar Hvalárvirkjunar við flutningskerfi Landsnets.
„Með þessu samkomulagi erum við að sjá hreyfingu í virkjanamálum á Íslandi og er það ánægjulegt þar sem aukin raforkuframleiðsla er ein af lykilforsendum orkuskipta á Íslandi og því að við náum loftslagsmarkmiðum okkar“ segir í tilkynningu frá Landsneti.
„Hlutverk Landsnets er m.a. að tryggja orkuöryggi og jafnan aðgang aðila á markað og er lykilþáttur í að tryggja virka samkeppni á raforkumarkaði sem er öllum til hagsbóta. Samvinna flutningsfyrirtækisins og virkjunaraðila í þessu tilfelli er því ánægjuleg framfaraskref.“
Nú tekur við hjá Landsneti að eiga samtöl við sveitarfélögin á svæðinu, vinna að leiðarvali, hefja rannsóknir og undirbúning fyrir umhverfismat á tengingunni.
Samningur um tengingu virkjunarinnar við raforkukerfið liggur enn ekki fyrir en nokkrir möguleikar á tengingu við fyrirhugað nýtt tengivirki Landsnets í Ísafjarðardjúpi eru til skoðunar.
Hvalárvirkjun er á rammaáætlun ríkisstjórnarinnar um nýtingu auðlinda landsins og hefur VesturVerk, sem er í meirihlutaeigu HS Orku, gert samning við landeigendur um nýtingu vatnsréttinda. Áætluð stærð Hvalárvirkjunar er um 55 MW í uppsettu afli með 5.818 klst. nýtingartíma á ári og orkugetu upp á 320 Gwh á ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á árunum 2026-2028.