Föstudaginn 17. maí verður kynning á Carbon/Kolvetni verkefninu sem er samstarfsverkefni Háskólaseturs (Catherine Chambers) og ArtsIceland (Elísabet Gunnarsdóttir). Evrópskir listamenn fengu styrk frá Creative Moves Europe til að dvelja á Ísafirði í maí og vinna með vísindamönnum á svæðinu. Á fyrirlestrinum munu gestalistamennirnir kynna sig stuttlega og síðan mun hópurinn velta fyrir sér ferli lista/vísindasamstarfs. Catherine og Elísabet kynna verkefnið á íslensku og listamennirnir tala á ensku.
Bohdana Patsiuk – myndlistarmaður – Úkraína
Martina Sedda – ljósmyndari – Ítalía
Nikita Leroy – þverfaglegur listamaður – Frakkland
Marcin Idzkowski – ljósmyndari – Pólland
Mateja Stanislava Rot – borgarfrumkvöðull og friðararkitekt/þverfaglegur listamaður/leikjahönnuður – Slóvenía
Sashko Danylenko – teiknari/hreyfimyndagerð/kvikmyndaleikstjóri – Úkraína/Bandaríkin
Erindið fer fram á kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða og hefst kl. 12.10. Erindinu er streymt í gegnum zoom hlekk og má finna hann hér:https://eu01web.zoom.us/j/69947471079