Fréttir Dynjandisheiði: þungatakmarkanir 17/05/2024 Deila á Facebook Deila á Twitter Frá Dynjandisheiði. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að vegna hættu á vegaskemmdum verður ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Vestfjarðarvegi (60) um Dynjandisheiði, milli Flókalundar og Dynjandisvogs, frá kl. 12:00 í dag, föstudaginn 17. maí.