Sameiginlegir framboðsfundir vegna sveitarstjórnakosninga í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar verða haldinir sem hér segir:
Fimmtudaginn 2. maí nk.
Baldurshagi Bíldudal klukkan 17:00
Félagsheimili Patreksfjarðar klukkan 20:00
Föstudaginn 3. maí nk.
Hópið Tálknafirði klukkan 17:00
Kosið verður til sveitarstjórnar og heimastjórna í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar laugardaginn 4. maí 2024.
Vakin er athygli á að kosning til heimastjórna á öllum stöðunum er hafin og fer fram á skrifstofutíma Ráðhúss Vesturbyggðar til og með föstudags 3. maí. Kosning til heimastjórna á hverjum stað fer fram samhliða sveitarstjórnarkosningunum á kjördag 4. maí í hverri kjördeild.