Veiðidögum á grálseppu hefur verið fjölgað úr 25 í 40 samkvæmt reglugerð sem gefin var út síðastliðinn föstudag.
Fiskistofa mun því fjölga veiðidögum um 15 hjá öllum þeim veiðileyfishöfum sem nú eru á veiðum og hjá þeim sem eiga eftir að hefja veiðar, að því er fram kemur í tilkynnignu á heimasíðu stofnunarinnar.
Heimilt er að landa 4.030 tonnum á yfirstandandi vertíð en síðustu ár hefur ekki tekist að veiða allan þann afala sem heimild er fyrir.
Á síðasta ári var veiðidögum fjölgað í tvígang.