Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar – leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar
Veðurguðirnir hafa orðið til þess að breyta þarf fundatíma á tveimur fundum um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar. Vakin er athygli á breyttum tímasetningum á upplýsinga- og umræðufundum á Birkimel og Laugum, sem verða nú sem hér segir:
- Fimmudaginn 21. mars, kl. 17 – 19.30 á Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd.
- Mánudaginn 25. mars, kl. 17 – 19.30 í Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal.
Kynnt verður verkefni, sem hófst árið 2022 um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar með tilliti til byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar. Markmið fundarins er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsinga, en hann mun síðan gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Dagskrá (sjá skjöl í virkum hlekkjum):
Inngangur og stöðugreining: Sigríður Finsen, formaður stýrihóps
Hagrænt virði Breiðafjarðar: Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV
Sviðsmyndagreining KPMG: Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Páll S. Brynjarsson, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi
Drög að tillögum stýrihóps kynnt
Umræður í litlum hópum
Samantekt niðurstaðna
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Fundaumsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir, hjá ILDI.