Í október í fyrra samþykkti alþingi í þingsályktun að setja á stofn nefnd til undirbúnings aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018. Nefndin hefur hún hafið störf og leitar eftir þátttöku almennings í hátíðardagskránni. Lögð er áhersla á samstarfsverkefni og verkefni með nýstárlega nálgun á viðfangsefnið segir í fréttatilkynningu frá nefndinni. Þar kemur sömuleiðis fram að auglýst verði eftir verkefnum í lok ágúst og þar eru eftirfarandi línur lagðar:
- Minnast aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands og/eða hafa skírskotun til þess þáttar í sögu þjóðarinnar.
- Fjalla um og/eða byggja á fullveldishugtakinu, hvort heldur er í fortíð, nútíð eða framtíð.
- Hvetja til samstarfs.
- Samstarf getur verið þvert á greinar, milli landsvæða, aldurshópa, þjóðfélagshópa, landa, ólíkra stofnana og félagasamtaka.
- Höfða til barna og ungs fólks og eru til þess fallin að auka þekkingu og innsýn þeirra í söguna, samfélagið og fullveldishugtakið.
- Höfða til fjölbreytts hóps fólks og hvetja til almennrar þátttöku.
- Draga fram áhugaverða samlíkingu milli fortíðar og nútíðar í sögu lands og þjóðar, s.s. í menntun, heilbrigðismálum, náttúru, umhverfismálum, vísindum, stjórnmálum, atvinnuþróun, samgöngum og í daglegu lífi fólks.
- Hafa nýstárlega nálgun á þjóðararfinn og/eða á viðfangsefnið.
- Eru til þess fallin að vekja athygli á sérstöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
bryndis@bb.is