Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur samþykkt breytingar á gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs sem miða að því að auka sveigjanleika og möguleika íbúa á að lækka kostnað vegna meðhöndlunar úrgangs.
Við álagningu gjalda vegna meðhöndlunar úrgangs á árinu 2023 voru innleiddar ýmsar breytingar á gjaldskrá Vesturbyggðar svo gjaldskráin tæki mið af breytingum á lögum um meðhöndlun úrgangs. Sveitarfélögum er nú óheimilt að greiða niður meðhöndlun úrgangs og ber að innheimta sem næst raunkostnaði.
Helstu breytingar sem samþykktar hafa verið eru:
- Íbúum gefst kostur á að sækja um minna ílát fyrir almennt sorp, 120l í stað 240l ílát.
- Íbúar í fjölbýlishúsum, parhúsum og eigendur að samliggjandi eignum gefst kostur á að sameinast um sorpílát.
- Íbúar með heimajarðgerð geta sótt um að fá felld niður gjöld á íláti fyrir lífrænan úrgang gegn því að sýna fram á aðstöðu til heimajarðgerðar.
Gjaldská og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Vesturbyggar.