Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra var greint frá því að starfshópur um eignir, jarðir og lendur í eigu Húnaþings vestra hafi skilað af sér tillögum
Þar kom fram að lagt var til að skólahúsnæðið á Borðeyri yrði boðið til sölu eða leigu með eflingu búsetu og atvinnu á svæðinu í huga.
Til að ræða þessa tillögu er boðað til íbúafundar á Borðeyri þar sem farið verður yfir möguleika og kallað eftir hugmyndum heimamanna um hugsanlega ráðstöfun hússins.
Fundurinn verður haldinn í skólahúsinu á Borðeyri þann 9. janúar kl. 20. Á dagskrá fundarins verður kynning á hugmyndum starfshópsins og umræður í kjölfarið.