78 umsóknir bárust í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða

Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða rann út 2. nóvember.

Alls bárust 78 umsóknir, sem er nokkru færra en í meðalári, 48 umsóknir til menningarverkefna, 4 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki og 26 til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.

Alls var sótt um 117,8 milljónir króna, en heildarkostnaður verkefna er rúmlega 415 milljónir króna.

Nú eru fagráð menningar og nýsköpunar að fara yfir umsóknirnar.

Úthlutunarathöfn vegna styrkveitinga fyrir árið 2024 verður haldin fimmtudaginn 7. desember kl. 16:00.

Athöfnin fer fram rafrænt, en boðið upp á sameiginlegt áhorf á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. 

DEILA